miðvikudagur, september 14

Í fréttum er þetta helst!

Ég hedl að við þrufum nú eitthvað sterkara en vígt vant og krossmark til að særa fram þá djöfla sem hér sveimuðu yfir vötnum á ársdögum FUGO. Nei ég held að við hið margsagða "þeir hæfustu munu landið erfa" hafi sýnt sig enn og aftur þar sem þessir púkar eru flúnir af hólmi(ísland=hólmur) og hafa eftirlátið okkur orðhákunum að greina skilmerkilega frá hversdeginum hér á´FUGO. Þökk sé þeim.

Heyrst hefur að feiti bauninn hafi farið hamförum við endurkomuna til Köben og sé Köbenhavs statt politiet en að slæða kanalinn til að leita að kauða. Menn kunnugir Baunanaum hafa þó ítrekað komið að máli við lögreglu og bent á að eðlilegra væri að slæða tanka Carlsberg bruggerísins sem staðsett er ekki langt frá heimili Baunans fremur en að vera að hanga yfir síkjunum.

Fleiri féttir hafa borist frá Danaveldi......fréttir herma að FedEx flutningafyrirtækið hafi skilað 40 feta gámi á heimilsfang stílað á Doctorinn, heimildarmenn Fugósins staðfesta að gámurinn innihaldi tíu árganga af Brides Magasine.

Ekkert hefur spurst til hins síkáta Herra Diskó sem gerir um þessar mundir hosur sínar grænar fyrir Ms. Liberty. Aulýsinr fúgó hér með eftir kallinum. Síðast þegar sást til hanns var hann íklæddur gulum sixpensara, pólóbol með áletruninni It´s hip to be square! beisaðar kvartbuxur og strandinniskó. Þeir sem hafa orðið varir við ferðir herra Diskó eru beðnir um að hafa samband við lögregluna, ekki þó efnahagsbrotadeildina ( það gæri tekið upp í 4 ár að vinn aúr gögnum tengdum símtalinu.)

Undirritaður er sj+álfur við hestaheilsu og hefur sér það helst til afþreyingar að sinna leiðinlegustuvinnuíheimi.is sem er nýtt áhugamál og snýst um að hringja í öryrkja og heimta af þeim fúlgur fjár fyrir óheimilafnot af videóspólum.

Nýjustu fréttir utan af landi herma að Konungur Árbæjarins sé Orðinn sölumaður dauðans.

Spjallaði við Orra í gær hann var bara hress, sagði meðal annars tilvitnun byrjar"Næst á dagskrá er Evveríbodí loves rraaaaaayymmmooonnnd, og ekki misssa af frábærum fööööstudegi ....Jaaaaayyy Leeeennnoo er alltaf hress og fær fjöldan allan af frábærum gestum í settið..." tilvitnun klíkur


þá er ekki fleira í þættinum í kvöld.................................veriði sæl

Gautur
Alltaf gaman að fara niður götu minningana. Góð blogg og gott diss, en eitt sem ég tek strax eftir. Í árdaga skrifuðu einhverjir undarlegir fírar á síðuna með okkur, jói, gunni, trölli og orri. Hvað varð um þessa sekki sem eitt sinn skrýddu vef okkar mishnyttnum orðalengjum? Reyndar kemur feiturinn sterkur inn og fagna ég því en ég vil fá að sjá gamla penna hérna inni líka.

þriðjudagur, september 13

Walk down memory lane!!!1

Mig langar að færa okkur félagana 2 ár aftur í tímann til árdaga FUGÓsins, Þeagr fjöldi manna hélt fram skoðunum sínum hér á síðunni, menn sem nú hafa flestir hverjir yfirgefið land vort í leit að frægð og frama áerlendri grund. Tímavélin tekur oftur aftur til mikilla og hatramar átaka sem fram fóru hérna í apríl á því herrans ári 2003. ég vil benda lesendum á að byrj aneðst á síðunni til að sjá hlutina í tímaröð. einkar athuglisvert. vill einnig vekja sérstaka athygli á stórkostlegu útliti síðunnar.http://fugo.blogspot.com/2003_04_27_fugo_archive.html

þess má geta að málsaðilar hafa kosið að tjá sig ekki um deilur þessar enda flestir flúnir land.

kv

Gautur

mánudagur, september 12

aulalegt...

Tók grísinn ekki til fyirmyndar í gær og fór að Soginu til að veiða hálfan titt heldur smellti mér á kajak niður flúðirnar, fiskarnir gátu verið rólegir. Hrikalegar flúðir, örugglega á skalanum 1 af 6, gott ef ekki 1 og 1/2. Allavega þaut í gegnum draslið án vandræða, fór að bakanum og beið eftir brósa. Á leiðinni út í ána aftur rakst ég á stein og hvolfdi draslinu og mér líka. Panicið var algjört, með hausinn ofaní vatni, hélt ég væri fastur og myndi deyja þarna svangur lífdaga. Ömurlegt? nei bara aulalegt. En hressandi, mæli með þessu svona í góðri þynnku...

Veiðimósi

Jæja, þá fer laxveiðivertíð mósans senn að ljúka, ekki nema einn túr eftir. Þetta er reyndar búið að vera hið ágætasta veiðisumar, hef narrað upp lax í hverri ferð og misst nokkra. Það sem gerir þetta enn skemmtilegra er að Kolli greyið telur veiðiguðinn vera að testa sig því að hann hefur nú átt tvö skelfileg veiðisumur í röð. Það er reyndar spurning um hvaða viðurnefni hann á að fá. Hann veiðir nebbla bara urriða þegar hann fer í laxveiði og ætti því að vera kallaður Urri, en hann er líka orðinn nokkuð desperate á að veiða svo það má líka alveg kalla hann Desperate Housewife eða jafnvel Bree van der Kamp.

Annars þótti mér nokkuð gott að laun bankastjóra seðlabankans voru hækkuð um 27%. Jú, ég meina bankastjórar viðskiptabankanna eru að fá stjarnfræðilega háar tekjur og ekki vill Seðlabankinn missa sitt fólk í einkageirann. Yeeesssss......það er nebbla mikil eftirspurn hjá einkareknum vipskiptabönkum eftir útbrunnum pólitíkusum sem eru álíka jafn hæfir bankastjórar og indverski sundlaugavörðurinn í Vesturbæjarlauginni.

föstudagur, september 9

Týpískt ég hef ekki fyrr yfirgefið kommagrýluna til að frelsast til Sjálfstæðistefnu en eða pólitískir tröllkallar eins og Davíð Odds yfirgefa flokkinn... mér finnst þetta lélegt ekki yfirgaf Móses draslið sitt í eyðimörkinni!!! Ætli Hannes fari ekki næst... og þá er þetta náttlega búið

miðvikudagur, september 7

af líðandi stundu

jæja þá vita menn hvar Davíð ætlar að kaupa ölið...