FS FUGO hefur öruggar heimildir fyrir því að loksins loksins hafi Trölli og frú fjárfesti húsnæði í Mosfellsbænum. Um er að ræða hvítt hús á besta stað við Brúarveginn sem uppfyllir allar þarfir hjónakornanna. Trölli hefur farið um allan bæinn upp á síðkastið og leitað að draumahúsinu en ekkert gengið og hefur gengi 66 N farið niður vegna þess álags sem fylgt hefur framkvæmdarstjóranum og kröppum kjörum undir súð. Aðspurður sagði Trölli að þetta hefið verið það sem frúin vildi og sér hafi einnig litist vel á. "Gott að komast í sveitina" sagði hamingjusama parið að lokum.
föstudagur, desember 9
Gleðifréttir frá fréttastofu FUGO

Einvígi risanna.

Mikil tímamót í söku Badminton íþróttarinnar á Íslandi verða í dag þegar tveir risar í íþróttinni munu etja kappi. Aðspurður sagði Broddi Kristjánsson 17. faldur Íslandsmeistari í badminton " þetta er bara álíka einvígi og Fischer og Spassky hérna í denn" eivígið ferð fram í húsakynnum Tennis og Badminton félags Reykjavíkur í kvöld að viðstöddu margmenni. Mótshaldarar búast við miklum fjölda tælendinga og annarra áhuga manna um hið karlmannlega sport Badminton. Telja framámenn í íslenska Badminton heiminum að þetta verði liftistöng fyrir félagið. Karl P Thoroddsen formaður HH( hnitfélags Hafnafjarðar) að þetta væri gott tækifæri til að kynna íþróttina og mun kynningarátak fara af stað í kvöld. Mun Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti taka fyrstu uppgjöf í leiknum í kvöld sem mun marka upphaf herferðarinar " HNIT ER SVALT" FUGO menn og aðrir eru hvattir til að láta ekki sitt eftir ligga og allir sem spaða geta valdið að láta sjá sig.
Spillingarmál á Umferðarstofu.

Fréttastofa fúgó fékk þessar tímamóta myndir sendar frá Umferðastofu í dag. hér er um að ræða myndir af skrifstofu Mósa sem virðist ekki enn hafa verið mönnuð síðan hann færði starfskrafta sína annað. Starfsmaður umferðarstofu sem ekki vill láta sín getið segir að það erfiðlega hafi gegnið að manna skrifstofuna þar sem hún er sérhönnuð með þarfir Mósans í huga og hafi hann greinilega beitt ítökum til sanfæra umsjónarmann fasteigna um að útvega sér skrifborð við hæfi.
fimmtudagur, desember 8
Deilt á Gautinn
Loksins eitthvað almennilegt, loksins eitthvað jus. Lögfræðiarmur FUGO er í bullandi ósætti.
Pælingar meistrar Gauts, hér fyrir neðan, kalla á vangaveltur um spurninguna; er lögfræði eitthvað meira en lagatækni, enn ein aðferðarfræðin í sófafræðum félagsvísindanna eða er um raunveruleg hugvísindi í anda Lock og Spinoza að ræða? og í framhaldi af því hver er munurinn á lögfræði og heimspeki, ef einhver, samanborið við lögfræði og stærfræði? Ég veit ekki svarið enda ekki lagabrekka. Skúli obiter dicta Magnússon veit það ekki heldur, ekki frekar en Líndal og DÞB. En það má pæla með Páli.
Því má halda fram að þegar öllu er á botninn hvolft þá snýst lögfræði um orð. Þá er átt við orð og tilgang orða í víðum skilningi sbr, kenningar Wittgensteins um málið og fleira. Spurningin um hvort til sé hin eina rétta lögfræðilega niðurstaða er álíka og spurning um hvort Einhyrningur sé til. Einhyrningur er sennilega ekki til í hinum raunverulega efniheimi en hann er til í huga okkar og leggjum við ákveðna merkingu í orðið "Einhyrningur" sem er hestur með horn. Einfalt. Þetta leiðir okkur að spurningunni hvort við getum vitað í reynd eitthvað um hinn raunverulega efnisheim með skynjun og vitsmunum einum að vopni. Allt sem við lærum er háð túlkun okkar og skynjun en ekki hvernig hlutur líta raunverulega út. Barátta vísindanna er því þeim takmörkunum háð að við getum ekki sagt til um eitthvað sem er ekki hluti af efnisheiminum eins og við skyjnum hann. Í framhaldi af þessu koma svo pælingar hvernig við vitum á annað borð nokkuð. Sennilega er það útaf reynslu og aftur reynslu. Klassík raunhyggja á ferð enda ekki vit í öðru!
En aftur að lögfræðinni. Við skynjum hluti af reynslu og það sama á við um orð. Merking orða er háð reynslu okkar á því hvað þetta orð þýðir. Borð er borð afþví að þannig hefur það verið og reiknum þá með að þannig um það áfram vera. Reynsluheimur lögfræðinnar er sá hinn sami. Regla er regla af því við leggjum ákveðna merkingu í regluna af reynslu og göngum útfrá því, til hægðarauka, að mun mun framvegis vera. Hin lögfræðilega rétta niðurstaða er til ef við leggjum einhverja merkingu í það orðasamband, byggða á reynslu. Hver sú merking er er einmitt það sem menn deila á um. Vildaréttur eða náttúruréttur, hverjum er ekki sama:)
Lögfræði er ss vísindi um orð og túlkun þeirra. Hvort tveggja tækni og vísindi. Ekkert merkilegri en hvað annað. Vil bara svo til að ákveðið hefur verið að lög skipta máli (eru lög nauðsynleg er svo aftur annað) í því kerfi samfélags sem búið hefur verið til....vegna reynslu fortíðar.
Svo mörg voru þau orð og mun ég sennilega ekki skrifa neitt hér aftur í bráð vegna fjölda áskoranna frá öðrum FUGO-limum. Bless :)

völundarhús hins júridíska þankagangs.

Á tillidögum eru löglærðir menn sem skara fram úr á sínu sviði oft nefndir júrista ( við skulum kalla þá lögspekninga) Sigurður Líndal hefur lengi verið í fremstu röð íslenskra júrista og hefur fengið þann vafasama heiður að vera kallaður lagabrekka ( sbr. mannvitsbrekka) Mig langaði mikið að vera lagabrekka og spekúlant þegar ég hóf laganám á sínum tíma. Fannst ég vera samt ferlega týndur eitthvað í völundarhúsi hins júridíska þankagangs. Sá ekki lausnina á þessu, svo las ég grein eftir aðra annálaða lagabrekku Davið Þór BJörgvinsson. Sem gerði mér ljóst að þetta er ferlega einfalt. eins og allir vita er þetta ferli ferlega einfalt. júridíska niðurstöðu verður að byggja á réttarreglu (má ekki vera geðþóttaákvörðun eins og t.d úthlutun úr kvikmyndasjóði.) Allir vita að til að til að skilja réttarreglur frá örðum reglum verður að líta til þess hvort viðkomandi regla sér reyst á gildri réttarheimild. í versta falli má alltaf láta sér detta eitthvað sniðugt, sanngjarnt og réttlátt í hug og kalla það eðli máls. Þeim sem dettur svo ekkert sniðugt í hug geta bara lagt stund á eitthvað annað nám, t.d læknisfræði. Það er víst lítið annað en ófrjó úttekt á staðreyndum eins og læknaprófessorinn í Harvard sagði. Ef þú ert enn að lesa ertu annað hvort laganemi eða geðsjúklingur. Umrædd grein Davíðs Þór er skyldulesning (fyrir áhugamenn um lögfræði) Eftir lesturinn hætti ég að leggja metnað minn í að verða lagabrekka..... sá bara að ég væri ekki nógu mikið intólektual til að ræða froðufellandi um keisarans skegg í fjölmiðlum og í reykfylltum bakherbergjum( það fer nú að líða undir lök, man ekki eftir einu einsata fyrritæki sem myndi leyfa slíkar reykingar í bakherbergi) En ég bíð spenntur eftir hverri grein sem tæpir á heimspekilegum vangaveltum um hugmyndafræðilegan bakgrunn laga og fátt er skemmtielgra en debat um skemmtilegar spekulasjónir eins og hina einu lögfræðilega réttu niðurstöðu. Alræði vildaréttar í íslensku samfélagi osfrv... en umræðuna læt ég eftir alvöru lagabrekkum framtíðarinnar með Skúla "kyntröll "Magnússon í fylkingar broddi.
miðvikudagur, desember 7
Til hamingju fúgó

FRábærlega skemmtilegt þetta berrössuðutjellingalúkk á fúgó.... samt er haldið tenglsum við græna skítinn alveg magnað. Fúgó á tímamótum. 10 ára afmæli FUGO. Berrössuð sláttu kona á bloggið og styttist í jólaglögg félagsins allta að gerast ... kjósa þarf sjórn hið snarasta til að sinna pólitíksum armi félagisns...
Er maður á barmi taugaáfalls í þessum töluðu orðum hef setið hérna yfir einhverju fokkings sóknarskjali sem við eigum að skila ekki seinna en í gær. Af einhverjum sókiljandlegum ástæðum var mér falið að smella einhverjum skjölum saman og gera einhverja svona frágangsvinnu. Þetta er bráð fyndið því þeir sem þekkja mig vita annars vegar að ég er óþolinmóðasti maður í heim og þó víðar væri leitað(mér tekst reyndar að fela það merkilega vel) hitt er að ég er ein mesta steik norðan Alpafjalla þegar kemur að tölvum. Eins og glöggir lesendur hafa orðið varir við þá ég litla samleið með vélbúnaði síst af öllu tölvum....... En alla vega þá er ég að fara að sparka í sveitta tölvufræði fitukeppinn sem situr hérna við hliðina á mér!!!!!
Rakst á skilgreiningu á FUGO í enskri orðabók ; a bomb carried by a balloon; "In World War II the Japanese launched balloon bombs against North America....... Blöðruspðrengjur það er nú pínu lýsandi ( allavega fyrir Krumma.)
p.s Er Saddam sekur.. mér er bara spurn... karl kvölin heldur að hann sé orðin einhver dýrlingur og gegnur um með ´kóranin og öskrar í réttarsalnum... hvar er kúlið í þessum arabörum... sá myndir frá réttarhaldinu og það v0ru bara allir eitthvað gargandi og baðandi út öllum öngum!!!!
Efast um að Stefán "svefnnauðgari" hefði fengið vægari dóm ef hann hefði staði öskrandi með biblíuna í hendinni ..... svona eru þessir arabar ..... þeir trúa ekki einu sinni á vaxtakröfur...( guðlast að rukka vexti) þannig þetta kannski virkar.
þriðjudagur, desember 6
Nýtt FUGO!
Hoj!
Ég var búinn að steingleyma þessu. Ég bjó til þetta lúkk á síðuna fyrir ca. ári síðan en það er með þetta eins og svo margt. Ég nennti ekki að klára það, svo það hefur legið óhreyft í lengri tíjma! Svo allt í einu núna, þegar okkur vantaði nýtt lúkk, þá rakst ég á þetta fyrir hendingu. Reyndar á ég eftir að ganga frá örlitlum vanköntum en vonandi truflar það ekki útsendingar.
Hejsan.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)