miðvikudagur, desember 14

Hah! ég vissi að þetta hefði bara verið gabb allan tíman.

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, hélt í dag áfram árásum á Ísrael. Sagði hann m.a. að helför gyðinga á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar væri þjóðsaga ein og flytja ætti gyðingaríkið til Alaska.

Loksins kemur sannleikurinn í ljós, fín hugmynd líka að geyma Ísrael á einhverjum jökli.

mánudagur, desember 12

mánudagskvak

þessu skal ég trúa...sé mælingamennina alveg fyrir mér...:"djöfusins hávaði í þessum skrímslum, þetta er óviðunandi", úrbóta er þörf.
annars var ég uppvís að því í prófi á laugadaginn að ég vissi ekki hvað ég vissi ekki. það var smart.

Jólunum aflýst en gyðingar taka gleði sína á ný!

Íslendingar hafa ákveðið að halda ekki jól í ár! Þess í stað ætla þeir að slást í hóp þeirra u.þ.b. 14 milljóna sem halda hina gyðinglegu ljósahátíð Hannukkah hátíðlega víða um heim. Þessi hátíðahöld rekja rætur sínar næstum því 2400 ár aftur í tímann og þar af leiðandi hljóta þau að vera merkilegri en jólin (komm onn, jólin eru ekki nema 2000 ára gömul í mesta lagi!).

Þessu til staðfestningar hafa þúsundir Íslendinga drifið sig í IKEA (mekku alls sem er sænskt) og keypt sér aðventuljós í hvern glugga! Þetta rennir reyndar stoðum undir þá kenningu mína að gyðingdómurinn sé í raun og veru sænsk uppfinning. Þetta er nokkuð sem má lesa frekar um í lítt þekktri sjálfsævisögu Knut Hamsun: Hvorfor jeg hatar Svenskarna. Bókin var gefin út í litlu upplagi árið 1949, þremur árum fyrir dauða Hamsuns og hefur aldrei komið út utan Noregs. Fróðir menn vilja meina að Hamsun hafi verið mjög argur út í Svíana fyrir það að veit sér ekki annan Nóbel fyrir þessa bók, en af titli bókarinnar og umfjöllunarefni að dæma þá getur maður varla undrast.

sunnudagur, desember 11

Engin Macjól

FS FUGO greinir frá því að allt viðskiptasamband við Bandaríkin liggur niðri um þessar mundir. Erfitt hefur verið að fá varahluti í Ford bíla og menn hafa þurft frá að hverfa frá MacDonalds og Burger King sem hefur lagst mjög þungt í menn. Heyrst hefur að Nielsen fjölskyldan sé í öngum sínum þar sem þau geta ekki haldið Macjól eins og þau hafa gert hingað til og er mikil hefð brotin. Þau eru reyndar í samningaviðræðum við Nonna til að bjarga aðfangadeginum.

Þetta mun allt lagast þann 3. janúar næstkomandi þegar mósinn tekur upp viðskiptasamband við bræður okkar í vestri og hefur Bush stjórnin gefið út yfirlýsingu um að viðskiptahallinn muni verða að engu í kjölfarið. Mósi mun standa fyrir miklum breytingum og þróun í viðskiptatengslum og mun öll áhersla verða lögð á StarWars varning og áfengisinnflutning.

Samkvæmt heimildum FS FUGO er slík hamingja er með plön Mósa að 3. jan hefur verið gerður að almennum frídegi þar vestra og mun heita Mowsing Pig Day, eða MPD. Stefnt er að því að hátíðahöld í kring um MPD muni slá út 4. júlí og Mardi Gras þar sem engin man hvort eð er lengur hvers vegna þessir dagar eru merkilegir og er ekki lengur talin þörf á áramótagleði vegna nálægðar þeirrar litlu hátíðar við MPD.

andinn og efnið - sunnudagshugvekja á aðventunni


Páfinn er töff. Hann er alveg með þetta. Rétt hjá honum að andinn hafi bara yfirgefið pleisið og skilið efnið eftir í tómu sukku. Allavega þá er andinn í mikillri hættu sem stafar frá efninu. Hættulegt efni, svona andefni. Dettur manninum kannski ekki í hug að það er andi jólanna sem er að stuðla að allri þessari efnishyggju? Nei, andinn á að vera bara staðlaður að pápískrifyrirmynd; íhugun og reykelsi með myrru en gullið er afþakkað. Ekki nema von að þetta er flókið og erfitt að vita hvernig maður á að haga sér. Maður á að vera góður og gefa gjafir á jólunum ásamt því að þiggja í hógværð gjafir annarra því það geta ekki allir verið að gefa og engin að þiggja. En maður má víst ekki halda of mikið upp á þetta því þá verður stemmningin yfirborðskennd sem er klént og það vill páfinn ekki. Gjafirnar mega heldur ekki vera of dýrar því það er snobb og bara forsetinn má snobba. Svo má ekki undirbúa jólinn of mikið því þá gleymast börnin en þetta er einmitt allt gert fyrir börnin, ekki jesú. Samt verða börnin að vita að fæðing jesús hafi verið merkilegt og hann góður gaur og þá mega jólinn ekki vera of hverdagsleg og leiðinleg.
Ekki nema von að andinn sjálfur sé að gefast upp á þessu og orðinn andfélagslegur. Ekki ég. Ég og minn andi erum í góðum fíling og ætlum að hafa efnið alveg eins og við viljum hafa það og hlustum ekki á hvernig aðrir eru að missa sig í því hvernig halda eigi jól.
Veit ekki með ykkur en ég er búinn að pússa skóinn minn fyrir nóttina.

11.12

í dag er merkilegur dagur og enginn virðist tala um það (hér) eins og er svo ég vil reyna að segja e-ð. Í dag unnum við Íslendingar (eða öllu heldur kvk) titilinn fallegasta fólkið í heiminum í 3 skipti, það er alla veganna gaman af því. Gallinn er bar að sama dag dó einn mesti grín snillingur núnda áratugarins,
góðir hlutir fylgja geinilega slæmum... se la vi. Gerum okkar best.... kv frá DK kem heim ASAP.

laugardagur, desember 10

íþróttafréttir

Leiðinlegt að þurfa að horfa upp á fullorðinn karlmann skæla eins og smá stelpa eftir að hann laut í rykið í einvígi risanna á áðan. En aumingja Trölli átti sér náttlega ekki viðreinsar von. En ég sé að það verður rematch þar sem spennan var í hámarki þegar starfsmenn TBR þurftu að draga æsta leikmenn út úr húsinu. Mæli með hinu sænskættaða hommasporti! Það ´mátti varla á milli sjá hvor hefði betur. Held að þessi 6 ár sem ég hef fram yfir Trölla í reykingum hafi verið farin að taka sinn toll undir lokin þar sem verulega var farið að draga af Pattanum áhangendum sínum til mikillar furðu. Annars er beðið eftir að Kátur Björn sýni snilli sína á Hnitvellinum þar sem hann hefur talað fj´laglega um eigins yfirburðí á því sviði enda Vestfjarða meistari með Hnoðra Hnitfélagi Flateyrar 1991.

komst að merkilegri uppgötvun í dag ég er ekki sonur foreldra minna heldur Harold Knynsberg og Marilyn Pearl Edmonson magnað http://www.countysupply.com/genealogy/m_family_id_I32565.html