föstudagur, mars 25

Farið hefur fé betra!

Ég vil byrja á að óska Mósanum innilega til hamingju með þetta!

Hjarta mitt blæðir að heyra félaga Krumma tala á svo niðrandi hátt um vorn heimabæ... þvílík skömm að þetta viðrini hafa búið undir fölsku flaggi í vöggu lýðveldisins á Íslandi!(þ.e vesturbænum.) Þetta er nú reyndar búin að vera alveg hreint gríðarlega löng og erfið fæðing hjá drengnum sem hófst með flóttamennsku út á landsbygðina fyrri hjartnærum 10 árum til Siglufjarðar ef ég man rétt... sem leiddi svo til þess að okkar maður gerðist dreyfbýlingur og lagðist í sjálfskipaða útlegð áratugum saman... þannig að það er elðilegt að okkar maður vilji búa upp í sveit...anyways.... ég óska drengnum aftur til hamingju með þennan áfanga!

Hvað varðar grillveislur í görðum þá held ég að það geti reyns erfitt fyrir okkur "úrhrökin og félópakkið" sem enn hírist í vesturbænum að safna okkur pening fyrir rútumiða í sveitasælu úthverfanna.

P.s Gleðilega páska félagar!

kv GAutur

miðvikudagur, mars 23

Vesturbær smesturbær!!!

Jæja, þá er Mósi gamli farinn úr helvítis rokinu og seltunni í vesturbænum. Mér hefur tekist að brjótast úr samfélagshlekkjum fátæktar og flyt úr gettóinu sem hefur hýst mig mestalla mína tíð. Ég hef fest kaup á sloti í heldrimanna hverfi borgarinnar og skil ykkur eftir í slömminu hjá úrhrökum og félópakkinu sem hefur verið smalað á þetta útnes og rokrassgat sem þeir kalla Vesturbæinn.....phu, þetta ætti að heita Verstibærinn!

Allavega, grillveisla og gaman í sumar í nýja garðinum mínum við nýja húsið mitt.

þriðjudagur, mars 15

Svanasöngur Pattans

Ég hef verið að velta mikið fyrir mér hvað ég eigi til bragðs að taka til að hleypa´lífi í þessa síðu. Það virðist ekki vera mögulegt í framkvæmd þar sem allir eru svo upp tekinir við að existera.. það segir nú kannski eitthvað um mig!... alltént þá hef ég í hygju að halda þessu sífri áfram hérna um ókomna tíð. En Held mínu regluleg abloggi gangandiþar sem enginn les þetta hvort sem er ... sé ykkur á pattinn_.blogspot.com.

kv

Gautur