þriðjudagur, júlí 10

Veðipósturinn

Jæja, þá eru línur farnar að skýrast!

Veiðimenn eru farnir að hita upp, Gubbi Nerg kominn með veiðihanska og Páfagautur farinn að æfa fluguköstin. Trölli situr sár í London og keypti sér gullfiska og leikur sér við að háfa þá upp og Skeinar fannst loks í drullupolli á Skeldunni.

Þeir sem koma í veiðina eru:

Mósagrís, formaður
Páfagautur, veiðiþjónn
Skeinar, yfirmaður bjórbirgða
Feitur, lögfræðilegur ráðgjafi
Einar, frændi
Nærbuxna-Atli, fluffer
Bóbó, yfirmaður neyðarhjálpar
KÍB, maðkur
Hugni, hirðfífl
Kretín-Kolli, fulli gaurinn
Gubbi Nerg, burðarsveinn

Kofinn er sagður rúma 10, þannig að við verðum bara að vera kátir kallar og kúra saman, en ég get ekki trúað því að það verði vandamál í þessum hýra hóp.

Við verðum á þrem bílum og ég legg til að skiptingin niður á bíla verði eftirfarandi:

Bíll 1(dvergjeppinn hans Skeinars)
Skeinar(bílstjóri)
Hugni
Bóbó
Feitur

Bíll 2(píkujeppinn hans Einars Frænda)
Einar Frændi(bílstjóri)
Nubbi Gerb
Nærbuxna-Atli

Bíll 3(fjallajeppi og lúxusbifreið í boði Dumma)
Mósagrís(bílstjóri)
Kretín-Kolli
KÍB
Páfagautur

Þetta er að sjálfsögðu bara tillaga, þannig að ef að menn vilja sitja í fanginu hver á öðrum eins og löðrandi kellingar þá er það fínt mín vegna.

Við fáum kofann kl. 19:00 á föstudaginn svo ég legg til að menn séu lagðir af stað úr bænum ekki mikið seinna en 15:00, 14:00 fyrir Skeinar því hann keyrir eins og kelling. Við getum byrjað að veiða um kvöldið þegar við erum komnir með kofann svo ég mæli ekki með að menn drekki í bílunum(hefur nákvæmlega ekkert með það að gera að ég sé að keyra).

Þið skuldið mér allir 5.500 kr. á mann fyrir kofa og leyfum, sendi á ykkur reikningsupplýsingar á meili.

Ég nenni ekki að útlista hvað þarf að taka með, ef þið gleymið einhverju mikilvægu þá ætla ég að hlæja að ykkur.

Hver og einn sér um mat fyrir sig. Ég verð með ferðagasgrill, en ég mæli með að það verði 4 einnota grill með í för því að ferðagasgrillið rúmar ca. 2 pulsur í einu.

Endilega kommentið ef ég er að gelyma einhverju.

Kv.
Veiðimósi

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er ekki kofinn svoldið lítill? Þurfum við ekki Annan Kofa, eða allavega Ban Ki-moon.

Gautur sagði...

HAHAH Pant sitja í aftursætinu í dvergjeppanum hans Einars HAHAHAHA...

Svo er gott að vera með FLUGNANET...

og á ég að trúa því að JOEY ætli ekki með???

Orri sagði...

Það er ekki bara gott að vera með flugnanet. Það er nauðsynlegt!!!

Reyndar er útlit fyrir ömurlegt veður, svo þá verður engin fluga, en vandamálið við það er að þá verður heldur enginn fiskur.

Ef við hins vegar notum "THE SECRET" þá fáum við sól, fuisku og fluguleysi. Eini gallinn þar á er að Einsi virðist draga að sér rigningu (sjáiði bara Kelduna!) Svo við erum sennilega fucked...

Þá er bara að taka nóg af heimabruggi með og veðja um hver er fyrstur að týnast á heiðinni. Ég segi Kretín-Kolli... Eða Gubbi Nerg.

Já, og ef ég á að sitja afturí limmanum hans Einsa, þá er ekki fræðilegur að ég verði edrú þegar við erum komnir á leiðarenda!

Mósagrís sagði...

Hahahahaha ég var fyrst núna að fatta þetta "SECRET" hahahahahaha Existential hippar!

Gautur sagði...

Það verður fullur dvergjeppi af extential hippum´og dr. Livingstone auðvitað.