föstudagur, mars 14

Mósaprins

Jæja, Mósi og frú urðu einum litlum strák ríkari í gærkvöld. Eftir langan og strangan dag kom prinsinn í heiminn, og þrátt fyrir að losa ykkur undan gooey fæðingarlýsingum þá ætla ég enn og aftur að benda á að fæðingar eru ekki fyrir the faint of heart!

Strákhnokkinn fæddist 18 merkur og 54 cm(sem er huge fyrir þá sem ekki kunna). Helgu heilsast vel, þrátt fyrir augljóst misræmi í stærðarhlutföllum og þess háttar.

Hér er svo mynd af litla stubb í þungum þönkum, dags gamall.



5 ummæli:

Gautur sagði...

Vá ekkert smá mannalegur strumpur og RISASTÓR!!! innielga til hamingju kæra fjölskylda!

Orri sagði...

Flottur gæi!
Innilega til hamingju með stóru litlu fitubolluna ykkar. Hlökkum til að koma og sjá konungsfjölskylduna. Knús og kossar til allra!
O. & H.

Joey sagði...

Kongrats með viðbótina í fjölskylduna :D

Doktorinn sagði...

Til hamingju med frikadelluna... er ekki buid ad skra hann i harvard og islenska skotveidifelagid?

Unknown sagði...

Til hamingju til ykkar allra :)

Kveðjur frá sviss