mánudagur, desember 31

Dauði og djöfull

Mig langaði bara til að lýsa yfir andúð minni og fyrirlitningu á Einari fyrir að hafa haldið kick ass partý með fríum bjór og gini. Núna tveim dögum seinna er ég enn með gubbuþynnkubragð uppí mér og mér líður eins og beinin á mér séu full af litlum maurum sem eru að hlaupa um, og ég er í vinnunni, vei. Það þarf vart að taka það fram að þetta er allt Einsa að kenna og hann er kúkalabbi.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ertu skarpari en skólakrakki ....

Ég sá hvergi lukku starwars kallinn með í prófinu, sem fylgdi með í öll próf í MR, hlýtur að hafa falið hann innanklæða.
kv Thelma