mánudagur, júní 30

Fugo grill

Sælt veri fólkið.

Það er löngu orðið tímabært að hafa næsta FUGO grill, þar sem það síðasta lukkaðist svo sérdeilis vel. Við Sandra munum að sjálfsögðu standa við stóru orðin og grilla spekkaðar steikur í liðið að þessu sinni, þó erfitt geti reynst að toppa trakteringar þær sem bornar voru fram hjá Hálandahöfðingjanum fyrr í sumar.

Þá er bara stóra spurningin....... eru menn lausir í grill t.d núna á fimmtudaginn? endilega melda sig inn og ef einhver annar tími hentar betur þá verður þetta mixað á þann veg að hafa grill þegar sem felstir sjá sér fært að mæta.

koma svo

(engin afsökun að búa út á landi: taki til sín þeir sem eiga)

3 ummæli:

Trölli sagði...

Vegna fyrirhugaðs aðalfundar Alþjóða Hvalveiðiráðsins verð ég á landinu helgina 19-20 júlí.. Erum menn ekki game í smá grill. Nema að menn séu eitthvað stressaðir að fá sjálfan Grillkóng-Fugo í mat til sín.

Orri sagði...

Frábært!
Ég er til í grill á fimmtudaginn, og ég er líka til í grill 19.-20. júlí, ég er þess vegna til í grill bara bæði þá og svo þáþá... Það er bara síðasta helgin í júlí (25.-27.) sem kemur sér illa fyrir spúsu mína, að öðru leyti held ég að við séum nokkuð góð.

Nafnlaus sagði...

meeen mig langar í Fugo Grill,

Sumarkveðjur frá Sviss

Gunni Berg