fimmtudagur, júní 15

Kvennréttindi

Skelfing sem ég er orðinn þreyttur á tuðinu í þessum kellingum alltaf hreint.Það er ekki stundlegur friður fyrir endalausu jarmi um launamisrétti, kúgun og og almennt óréttlæti heimsins í garð kvenna.

Íslenskra kvenna! Þvílíkur endemis þvættingur.Yfir hverju hafa íslenskar konur að kvarta? Það er svoleiðis hlaðið undir rassgatið á þessu hérna. Það eru krúsídúllubúðir og hárgreiðslustofur á hverju götuhorni, þær geta valið úr tískublöðum, sjónvarpssápum, fitubrennslunámskeiðum og fæðubótarefnum. Þær fá bæði að kjósa og keyra bíl. En nei. Íslenskar konur eru kúgaðar. Þeim finnst þær nefnilega ekki fá nógu vel borgað fyrir það sem þær kjósa að kalla sambærileg störf. Sumsé vinnuframlag þegar frá er talin aukavinnan sem þær ekki nenna að vinna - og að því gefnu að þær séu hvorki óléttar - né á túr.Þetta er bara rugl.

Ef konur eru svona óánægðar með laun sín og kjör ættu þær bara að asnast til að skipta um vinnu, ekki satt? En nei, þær láta sko ekki bjóða sér hvað sem er.Þau fáu störf sem konur á annað borð hafa nennu til að stunda, altsvo þau störf þar sem þær komast auðveldlega úr til að fara í ræktina - og svo í maníkjúr, hafa þær nefnilega markvisst lagt undir sig með frekju og yfirgangi. Vinnuveitendur neyðast því til að tæla með gylliboðum í þessi sömu 'sambærilegu' störf karlmenn, sem á annað borð þola samvistirnar við andlitsspartslað, dragtklætt kvennagerið. Og nú rær þetta hyski öllum árum að því að komast í stjórnir fyrirtækja - finnst það bersýnilega hið eftirsóknarverðasta af öllu eftirsóknarverðu. Stjórnarseta! Annálaðasta letibykkjudjobb sem fyrirfinnst. Jafnvel hörðustu bissníssnaglar breytast við slíka setu á örskotsstundu í forherta kaffiþambara og kjaftatíkur.

Vei viðskiptalífi íslensku ef bannsettar kellingarnar komast þangað inn brjóstfalskar og klaufpilsaðar með lattebolla sína og kjaftablöð.Svo eru þeir sem voga sér að andhæfa þessari óvinveittu yfirtöku kvensniftanna úthrópaðir karlrembufauskar og vændir um steingerða heilastarfsemi.

Huh! Sér er nú hver remban. Ekki erum við vesalingarnir með sérstaka karlakirkju, karlréttindafélag Íslands, karlasögusafn eða moðerfokking Rannsóknastofu í karlafræðum!Það hefðu nú adeilis heyrst skrækir í horni ef við hefðum haldið Karlafund á Þingvöllum síðastliðið sumar. Karlafundur!? Hvað með uppvaskið? Ætlaðir þú ekki að þvo bílinn? Fékkstu ekki að hitta strákana í fyrrasumar!

9 ummæli:

Mósagrís sagði...

Heyr heyr!!! Mér hefur alltaf þótt vanta Rannsóknarsetur í kallafræðum og kallréttindafélag. Og svo náttúrulega þessi asnalegu kvenfélög útum allt. Afhverju eru ekki til sambærileg kallfélög þar sem við getum farið út í tíma og ótíma og chillað og skemmt okkur á eþim forsendum að við séum á fundi kallfélagsins.

Nafnlaus sagði...

Eru banana-, heftara- og ávaxtadrengir bitrir?

Kannski það sé e-r vel snyrt kona með magavöðva, sílíkon og sem leyfir rassapot heima fyrir að pirra þig í vinnunni hmmmmmmm

Nafnlaus sagði...

Þið eruð sorglegir strákar, hræddir við jafnrétti. Skiljiði ekki að því meiri völd sem konur fá því minna þurfum við að gera og meiri tími til að drekka bjór og horfa á fótbolta.
Svo hefur það voða lítið með feminisma að gera að Gautur lætur konur kúga sig heldur stafar það að því að hann er hryggleysingi. Krumpur er hins vegar ekki bara hryggleysingi hann er heimskur hryggleysingi.

Nafnlaus sagði...

Við látum þetta bull í Kolbeini "Machoman" ekki koma okkur hryggleysingjunum úr jafnvægi, hver veti nema karlmennið myndi taka upp á því að drekka okkur undir borðið.

til að svara konu á túr: ( sem bæ the vei er ekki eitthvað sem menn eiga að gera nema í brýnustu neyð) þá hélt ég nú að það þyrfti ekki að spyrja hvort að menn hér væru bitrir.... HVAÐ SÝNIST ÞÉR!!!!!

Nafnlaus sagði...

WHY????

Nafnlaus sagði...

Eitthvað finnst mér innihald þessarar síðu nú vera farið að rýrna!

Man ekki betur en að Grautur hafi postað þessari færslu fyrir svona hálfu ári eða svo...

Honum dreymir líklega um að eignast konu sem er á kúkalaunum og að dóttir sín fái helmingi lægri laun en karlmaður í sama starfi þegar hún fer út á vinnumarkaðinn.. er þaggi?

katur bjorn sagði...

legg til að lokað verði á anímusa og konur á túr hér á síðunni, aðallega á konur á túr. þetta gengur ekki lengur, ofsóknir og skítkast á saklausa drengi sem eru að velta lífinu og heiminum fyrir sér....burt með ykkur skítapakk.

afhverju var vígdís ekki forsæta?

Nafnlaus sagði...

Ég vill þakka þessum hressa og einstaklega skemmtilega anonímusi fyrir frábært innlegg í umræðuna. einnig vil ég benda Anonímusi á að ef innhald þessarar síður er farið að rýrna alvegar lega þá er alltaf hægt að leita á náðir annarra miðla. Og það er rétt að þessi póstur hefur komið fram áður, en sjaldan er góð vísa of oft kveðin og hananú.

Mósagrís sagði...

Hvað er dæmið með "WHY???" póstinn hjá anali? why hvað? hverju ertu að spyrja að heimski monginn þinn? Ekki nóg með að vera nafnlaus kettlingur og skálkaskjól feminazis þá ertu líka með pointless post. fíbl.