föstudagur, júlí 21

Ritarar rokka

Vá hvað það er mikil snilld að hafa ritara!!! Ég er náttúrulega hið mesta skipulagningartröll og hef besta filingsystem sem til er, þ.e.a.s. það eru þrjú risastór pappírsfjöll á borðinu mínu með alls konar drasli og hillurnar mínar eru kaos útí eitt. Inn gengur nýji ritarinn minn, sem ég vissi ekkert hvað ætti að gera við, og byrjar að raða öllu fyrir mig og ganga frá stöffinu mínu. Dúd, hún er meira að segja að henda drasli og gömlum dagblöðum fyrir mig. Mér finnst að allir ættu að eiga svona ritara, fá einn heim líka til að vaska upp og svona.

Engin ummæli: