fimmtudagur, júlí 27

þungt haldinn af hamboraraáti

Ég held að ég þurfi nauðsynlega að komast í tæri við einhvern grasalækni.... er er bókstaflega að drepa sjálfan mig úr orkuleysi og þreytu. Á erfitt með að einbeita mér og er bara almennt eins og einhver hafi keyrt á mig. Þetta er alveg hrikalega óþægilegt veit ekki mitt rjúkandi ráð, sé mér þann kost vænstann að skunda að starfi loknu í heilsuhúsið og splæsa í eitthvað vítamínsjitt til að koma manni í gang. Hef reyndar mína kenningu um þetta orkuleysi mitt, held að það tengist slæmu mataræði þar sem ég hef eingögnu nærst á skyndibitafæði undanfarna 3 mánuði, held að svona McDonalds áhrif séu farin að gera vart við sig. En nú er mál að linni, verð að hressast við þetta er bara ekki hægt.... :(

Held að það sé komið að nýju spelt tímabil hjá undirrituðum, í því felst að mataræði er tekði í gegn og líkami og sál endurnýjuð jamm jammm.....



..

Engin ummæli: