þriðjudagur, september 5
Mowsing Pig: The Crime Fighting Pig
Hollywood hefur ákveðið að gera stórmynd um átökin í Smáborgarahöllinni og mun myndin heita "Mowsing Pig: The Crime Fighting Pig". Fáum kemur á óvart að Russel Crowe mun leika Mósagrís en það er keppni milli Jessicu Alba, Kieru Knightley og Jennifer Aniston um að fá að leika Frú Mósa. Reyndar hefur hlutverk Frú Mósa aðeins verið aukið og verður hún shotgun blasting heroine í myndinni og Mósagrís verður forsetinn. Innbrotsþjófarnir hafa verið gerðir að geimverum og í staðinn fyrir að reyna að brjótast inn eru þeir að reyna að ná heimsyfirráðum. Samt sama sagan í meginatriðum.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
S.s. Russel Crow kemur til með að elta geimverurnar út fyrir lóð Hvíta Húsins (Kaninn staðfærir allt) og ná bílnúmerinu þeirra, meðan hann horfir á þær keyra burt. Eftir þetta hringir Russel-inn á lögguna sem mætir á staðinn og tekur niður helstu upplýsingar.
Þetta yrði alla veganna frumlegt, það er alveg pottþétt.
HAHA!
Á meðan stendur Jennifer Aniston úti á svölum og plaffar með haglaranum uppí loftið og æpir hástöfum: VZ-496, VZ-496...
Hljómar eins og blockbuster.
Skrifa ummæli