mánudagur, febrúar 27

Veiði - Síðustu forvöð

Jæja, nú er komið að pöntun veiðileyfa.

7 FUGO menn hafa staðfest þáttöku sína og er því eitt leyfi eftir. Ef enginn staðfestir í dag þá mun sambýliskona og frilla Gubba Nerg, fröken Atli, fá síðasta plássið en hún hefur meldað sig fyrir þónokkru síðan.

Þeir sem eru inni eru:

Mósi
Gubbi Nerg
Trölli
Feitur
Grautur
Jói Diskó
Dr. Djúsíbúrger
(Fröken Atli)

Ég mun senda upplýsingar um greiðslu á morgun. Ef einhverjir FUGO menn ætla að koma sem ekki hafa meldað sig þá hvet ég þá til að gera það í hvelli.

P.s. Það er reyndar eitt smáatriði sem breytist. Veiðin átti að vera 25.-27. ágúst, en vegna undarlegra starfshátta SVFR þá færist þetta fram um einn dag og verður 24.-26. ágúst. Það á ekki að skipta okkur neinu.

P.p.s. Ekki skil ég að maður sem kýs að ganga undir því furðulega nabni Gautur sé að potast útí hið háæruverðuga nafn Mósagrís.

Engin ummæli: