jæja þá er jólabilunin að verða á enda runnin það er ágætt eins fín og jólin eru nú reyndar. Ég var að keyra að kvöldi aðfangadags, var að keyra niður laugaveginn og viti menn í útvapinu glumdi eitt það súrasta jólalag sem ég hef nokkru sinni heyrt. Við lagið er einhvern veginn svona "..einmana á jjjóóóólllllaaaaanótt..." þetta var ekkert að hafa neitt sérstaklega góð áhrif á pattann þar þannig að ég hækkaði bara allt í botn og keyrði grenjandi með hor út á kinn og kyrjaði "einmana á jólanótt" samt ágætis fílingur
Frábærlega velheppnuð jólahátíð, fallegar gafir og kann ég öllum bestu þakkir fyrir. Þetta er nú alveg hreint stórkostleg tilvera sem við lifum hérna og nýtt ár og nýtt upphaf í nánd, þetta verður ekki mikið betra ég óska öllum félögum og vinum gleðilegs árs og gæfuframtíðinni.
Ég kveð árið brosandi og gegn sáttur af velli!
Leiter félagar.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
það virðist sem gautur hafi hér þvaðrað nokkuð í skál. Ekki er að verra enda jólin. Til hamingju jesú með afmælið og allt það og þið hinir, Skál
Skrifa ummæli