Að þekkja orrustuvöllinn vel er lykillinn að góðum sigri. FUGO væntir þess að allir karlmenn geri sína skyldur. Þetta er opið stríð. Leyfilegt er að nota öll möguleg meðul. Gautur er núna í stífri þjálfun sem tálbeita fyrir Mósan en hann er á fullu við að þróa hátækni leynivopn sem verður fjarstýrt frá HQ. Trölli hefur þegar hafið aðgerðir á Suðurlandshálendi til að hleypa meira vatni í ána. Doktorinn er að rækta danska einfrumunga til að sleppa í ána í sumar. Þeir munu fara í óvininn, fjölga þeim og stækka. Allt veltur á hárnákvæmu skipulagi, réttri tímasetningu og þolinmæði. Borðið er klárt, mennirnir eru á hreyfingu.
Svo legg ég til að við hemjum okkur og hættum að tala um þessa veiði í dágóðan tíma. Annað er meira aðkallandi...ekki rétti tíminn til að fara á taugum...
Að lokum er lofaðir FUGO menn hvattir til þess sérstaklega að hafa stjórn á eigum sínum...
miðvikudagur, mars 8
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Hann er ekkert að meina okkur Maren?
Okkur?? Neihhh það getur nú ekki verið! ;)
Og þess vegna er konum ekki hleypt í Mensa
hahaha það er ekki að spyrja að kjaftinum og vanþakklætinu í þessum köllum! ;)
Við vinkonurnar erum náttúrulega bara í góðmennsku okkar og húsbóndahollustu að halda lífi í þessari síðu með því að deila okkar stórgóða húmor og kommenta.. og ég get ekki séð annað en að það sé að virka ágætlega ;)
Og varðandi Mensa ætla ég bara að kvóta í Woody Allen og segja: "I would never want to belong to any club that would have someone like me for a member." :)
múhahahaha..... Þið eruð alveg áaagætir!!
Skrifa ummæli